Til minnis
Tengja við gervigreind
Þú getur tengt Til minnis við Claude, ChatGPT og önnur gervigreindarforrit sem styðja MCP. Þá getur þú spurt um dagatalið þitt og annálinn, til dæmis:
- „Hvað er á dagskrá hjá mér í næstu viku?“
- „Hvenær er næsti frídagur?“
- „Hvenær bónaði ég bílinn síðast?“
Þú þarft þessa slóð:
https://tilminnis.is/mcpClaude
- Farðu í Settings → Connectors og veldu Add custom connector.
- Gefðu tengingunni nafnið Til minnis og límdu inn slóðina.
- Veldu Connect og skráðu þig inn með Til minnis-aðganginum þínum.
ChatGPT
- Opnaðu Plugins í ChatGPT á vefnum (ekki í appinu), veldu + og svo Add custom MCP server.
- Gefðu tengingunni nafnið Til minnis, límdu slóðina inn undir Connection og veldu OAuth sem auðkenningu.
- ChatGPT varar við að tengingin sé ekki staðfest af OpenAI; það er eðlilegt. Veldu I understand and want to continue og svo Create as a plugin.
- Settu viðbótina upp og skráðu þig inn með Til minnis-aðganginum þínum. Í nýju spjalli skrifar þú @ og velur Til minnis.
Það fer eftir áskriftarleið og stillingum vinnusvæðis hvort þú getur bætt við eigin MCP-netþjóni. Í vinnusvæðum fyrirtækja getur stjórnandi þurft að gera það.
Önnur forrit
Í öðrum forritum sem styðja MCP-netþjóna á vefnum: bættu við netþjóni með slóðinni hér að ofan og skráðu þig inn þegar beðið er um það.
Hvað getur gervigreindin gert?
Eins og er getur hún aðeins lesið: dagatalið (þína viðburði, frídaga og merkisdaga), leitað að viðburðum og lesið annálinn þinn. Hún getur ekki breytt neinu eða eytt.
Persónuvernd
Þegar þú spyrð sækir forritið það sem það þarf úr Til minnis og sendir til fyrirtækisins sem rekur gervigreindina (til dæmis Anthropic eða OpenAI), samkvæmt þeirra skilmálum. Aðeins þú getur tengt aðganginn þinn, og þú rýfur tenginguna með því að fjarlægja hana í forritinu. Sjá nánar um persónuvernd.
Skoðaðu líka gagnastillingar forritsins, til dæmis hvort nota megi spjallið þitt til að þjálfa gervigreind („Help improve Claude“ í Claude, „Improve the model for everyone“ í ChatGPT).